(Þessi pistill var upphaflega fluttur á Þjóðarspeglinum árið 2020 í málstofu um lífsgæði og þátttöku fatlaðra barna, sem "Innlegg frá einhverfri konu sem horfir til baka til unglingsáranna – horft til barnæsku og unglingsára og að verða fullorðin og allt sem því fylgir".) Komið sæl, takk fyrir að bjóða mér að tala hér í dag … Halda áfram að lesa: I made it through the wilderness
Stúlkur á einhverfurófi
Gríman (masking)
(Þessi pistill var fyrst lesinn í hlaðvarpinu Ráfað um rófið) Engir tveir eru eins, en þó mæta nánast allir einstaklingar á einhverfurófinu sterkum kröfum um að falla í fjöldann. Ekki vera öðruvísi, heldur vera meira eins og hinir. Gríman Með aukinni þekkingu á einhverfu verður hugtakið „masking“ – að setja upp grímu – sífellt þekktara. … Halda áfram að lesa: Gríman (masking)
Athvarf í stað refsingar – um aðskilnað nemenda í skólum
Pistill þessi birtist fyrst sem aðsend grein á vef Fréttablaðsins þann 21. október 2021 Umboðsmaður Alþingis hefur nú, annað árið í röð, óskað eftir upplýsingum frá fræðsluyfirvöldum um aðskilnað barna frá samnemendum sínum og vistun þeirra í sérstökum rýmum grunnskóla. Fyrirspurnir Umboðsmanns koma í kjölfar ábendinga og kvartana frá foreldrum um að börn hafi verið … Halda áfram að lesa: Athvarf í stað refsingar – um aðskilnað nemenda í skólum
Einhverfar konur og ofbeldi
Ég hef alltaf hugsað í mynstrum. Þau sækja að mér úr öllum áttum, allt frá bílnúmerum yfir í strikin sem ég forðast að stíga á á gólfum eða stéttum. Það leynast mynstur í orðum og máli, taktur býr í öndun og hjartslætti og endurtekningar birtast í hegðun og framkomu. Enda þótt konur á einhverfurófinu séu … Halda áfram að lesa: Einhverfar konur og ofbeldi
Staður fyrir rödd og reynslu einhverfra
Erindi þetta var flutt á ráðstefnu BUGL, "Ég má vera öðruvísi, margbreytileiki einhverfurófsins" þann 29. janúar 2021, fyrir hönd Einhverfusamtakanna. Einhverf móðir berst fyrir greiningu dóttur sinnar frá því hún er 12 til 15 ára. Framan af eru viðbrögðin frá kerfinu neikvæð, því dóttur hennar “gengur svo vel í skólanum”.Foreldrar einhverfs pilts funda reglulega með … Halda áfram að lesa: Staður fyrir rödd og reynslu einhverfra
Er einhverf stelpa í bekknum hjá þér?
Ég hugsa að flestir kennarar myndu svara þessari spurningu neitandi, samkvæmt sinni bestu vitund. Ég er hins vegar sannfærð um að langflestir kennarar ættu á einhverjum tíma að geta svarað henni játandi. Staðan er bara sú að einhverfar stúlkur eru alltof oft ósýnilegar, en eru í raun mun fleiri en okkur hefur nokkurn tímann grunað. … Halda áfram að lesa: Er einhverf stelpa í bekknum hjá þér?
Thinka
Lengi vel hélt ég að þynnka væri skrifað "thinka". Að það að vera að "drepast úr þynnku" þýddi að vera með rosalegan móral og geta ekki hætt að hugsa um eitthvað sem maður hefði gert af sér. Ekki svosem mjög fjarri lagi, þar sem þunna fólkið er oft líka með móral og finnst ekki alltaf … Halda áfram að lesa: Thinka
#ósýnilegar
Þann 2. apríl urðu straumhvörf í tilveru einhverfra kvenna á Íslandi, þegar heimildarmyndin "Að sjá hið ósýnilega" var frumsýnd. Myndin er 90 mínútna löng og segir frá lífi 17 ólíkra kvenna, frá okkar eigin sjónarhorni og með okkar eigin orðum. Það hefur verið töfrum líkast að fylgjast með og taka þátt í þessu einstaka verkefni … Halda áfram að lesa: #ósýnilegar
Augu
El ojo que ves no es ojo porque tú lo veas - es ojo porque te ve. (Antonio Machado) Augað sem þú sérð er ekki auga af því að þú sérð það - það er auga af því að það sér þig. Ég veit svosem ekki hvað ég hef horft mikið í augun á öðrum, … Halda áfram að lesa: Augu
Ómissandi rödd sem næstum var þögnuð
Frá því ég las það fyrst að Greta Thunberg, sænska skólastelpan sem fór í verkfall til að berjast fyrir loftslagsmálum og fer síðan sigurför um heiminn, væri á einhverfurófinu hlýnaði mér alltaf meira og meira í hjartanu við að hugsa til hennar. Það kom mér reyndar síður en svo á óvart að hún væri einhverf, … Halda áfram að lesa: Ómissandi rödd sem næstum var þögnuð