Contact

Guðlaug Svala Kristjánsdóttir er sjúkraþjálfari að mennt og að auki með umfangsmikla reynslu af félagsmálum. Eins og algengt er með konur á einhverfurófinu þá fann hún sína einhverfu í kjölfar annars vegar greininga barna og hins vegar einhverfukulnunar. Hún þekkir því einhverfu frá ýmsum sjónarhornum, bæði sem einstaklingur, móðir og fagmaður. Guðlaug Svala starfaði sem verkefnastjóri fræðslu hjá Einhverfusamtökunum, en starfrækir nú einhverfufræðslu og -ráðgjafarfyrirtækið Skynvin ehf.

← Back

Your message has been sent