Af hverju ætti ég að þykjast vera einhverf?

Einn af rauðu þráðunum í reynslusögum kvenna á einhverfurófi, sem margar hverjar greinast á fullorðinsaldri, oft eftir langa og erfiða baráttu við að finna sér stað í tilverunni, er að þeim er ekki trúað, greiningin ekki tekin gild. Víða er líka erfitt að komast í greiningu og fordómar fagaðila sterkir, í takt við karllæga slagsíðu … Halda áfram að lesa: Af hverju ætti ég að þykjast vera einhverf?

Súr pilla

Ég er búin að vera að japla á súrri pillu í allt sumar sem ég verð einhvern veginn að fara að koma frá mér. Þannig er að ég las í vor umfjöllun um nýlegar rannsóknir, í Bandaríkjunum og Bretlandi meðal annars, um viðmótið sem mætir einhverfum einstaklingum í samfélaginu, sem og þau áhrif sem það … Halda áfram að lesa: Súr pilla

Tapað fundið – að greinast fullorðin á einhverfurófi

Undanfarna mánuði hef ég verið að melta tvær spurningar sem ég fékk í greiningarferlinu, þegar niðurstöður lágu fyrir. Sú fyrri var: Hverju finnst þér greiningin breyta? og sú síðari: Heldurðu að það hefði komið þér að gagni að greinast sem barn? Þó svo greiningin hafi verið staðfesting sem síst kom á óvart, fylgdu henni engu … Halda áfram að lesa: Tapað fundið – að greinast fullorðin á einhverfurófi

Ég er Beta

Hvaða sögupersóna úr bókum Astridar Lindgren ert þú? Af og til rekst ég á netpróf sem segja til um hvort við erum Lína, Ronja, Emil eða aðrir snillingar úr sögum Astridar Lindgren, en það vantar alltaf mína manneskju í þessi próf. Það vantar hana Betu, litlu systur Madditar. Beta er hrein og bein, hvatvís, huguð … Halda áfram að lesa: Ég er Beta

Einelti og ofbeldi, algeng reynsla stúlkna og kvenna á einhverfurófi

Stúlkur og konur á einhverfurófi deila mörgum sérkennum sem auðvelt er að bera kennsl á ef þekking er fyrir hendi. Eitt af því sem við deilum líka því miður allt of margar hver með annarri, eru áföll og erfið lífsreynsla í tengslum við mannleg samskipti. Konum á einhverfurófi gengur verr en öðrum að lesa í … Halda áfram að lesa: Einelti og ofbeldi, algeng reynsla stúlkna og kvenna á einhverfurófi

Ferðalangur á jörðinni

Á myndinni sést stúlka horfa gegnum myndavélarlinsu. Umhverfið er eyðilegt. Ef ekki væri þarna malarvegur, girðing og rafmagnsstaurar mætti halda að telpan væri ein í heiminum. Hefði jafnvel dottið af himnum ofan, ein með myndavél og sinn eigin skugga. Ferðalangur á jörðinni. Það glittir í heiðan himin milli ljósra og dökkra skýjabakka. Veðrið virðist kyrrt, … Halda áfram að lesa: Ferðalangur á jörðinni