(Þessi pistill var upphaflega fluttur á Þjóðarspeglinum árið 2020 í málstofu um lífsgæði og þátttöku fatlaðra barna, sem "Innlegg frá einhverfri konu sem horfir til baka til unglingsáranna – horft til barnæsku og unglingsára og að verða fullorðin og allt sem því fylgir".) Komið sæl, takk fyrir að bjóða mér að tala hér í dag … Halda áfram að lesa: I made it through the wilderness
Konur á einhverfurófi
Gríman (masking)
(Þessi pistill var fyrst lesinn í hlaðvarpinu Ráfað um rófið) Engir tveir eru eins, en þó mæta nánast allir einstaklingar á einhverfurófinu sterkum kröfum um að falla í fjöldann. Ekki vera öðruvísi, heldur vera meira eins og hinir. Gríman Með aukinni þekkingu á einhverfu verður hugtakið „masking“ – að setja upp grímu – sífellt þekktara. … Halda áfram að lesa: Gríman (masking)
Einhverfar ástir
Eftirfarandi pistill var fluttur í þættinum Lestin á RÚV þann 25. janúar 2021. (Fyrsta og síðasta setning hans er örljóð frá mér til Benna) Til að geta fundið þig varð ég fyrst að finna mig Ef ég slæ inn leitarorðin „einhverfa“ og „ást“ (á ensku) sýnir google mér nokkur dæmi um algengar spurningar notenda sinna. … Halda áfram að lesa: Einhverfar ástir
Er einhverf stelpa í bekknum hjá þér?
Ég hugsa að flestir kennarar myndu svara þessari spurningu neitandi, samkvæmt sinni bestu vitund. Ég er hins vegar sannfærð um að langflestir kennarar ættu á einhverjum tíma að geta svarað henni játandi. Staðan er bara sú að einhverfar stúlkur eru alltof oft ósýnilegar, en eru í raun mun fleiri en okkur hefur nokkurn tímann grunað. … Halda áfram að lesa: Er einhverf stelpa í bekknum hjá þér?
Thinka
Lengi vel hélt ég að þynnka væri skrifað "thinka". Að það að vera að "drepast úr þynnku" þýddi að vera með rosalegan móral og geta ekki hætt að hugsa um eitthvað sem maður hefði gert af sér. Ekki svosem mjög fjarri lagi, þar sem þunna fólkið er oft líka með móral og finnst ekki alltaf … Halda áfram að lesa: Thinka
#ósýnilegar
Þann 2. apríl urðu straumhvörf í tilveru einhverfra kvenna á Íslandi, þegar heimildarmyndin "Að sjá hið ósýnilega" var frumsýnd. Myndin er 90 mínútna löng og segir frá lífi 17 ólíkra kvenna, frá okkar eigin sjónarhorni og með okkar eigin orðum. Það hefur verið töfrum líkast að fylgjast með og taka þátt í þessu einstaka verkefni … Halda áfram að lesa: #ósýnilegar
Augu
El ojo que ves no es ojo porque tú lo veas - es ojo porque te ve. (Antonio Machado) Augað sem þú sérð er ekki auga af því að þú sérð það - það er auga af því að það sér þig. Ég veit svosem ekki hvað ég hef horft mikið í augun á öðrum, … Halda áfram að lesa: Augu
Af hverju ætti ég að þykjast vera einhverf?
Einn af rauðu þráðunum í reynslusögum kvenna á einhverfurófi, sem margar hverjar greinast á fullorðinsaldri, oft eftir langa og erfiða baráttu við að finna sér stað í tilverunni, er að þeim er ekki trúað, greiningin ekki tekin gild. Víða er líka erfitt að komast í greiningu og fordómar fagaðila sterkir, í takt við karllæga slagsíðu … Halda áfram að lesa: Af hverju ætti ég að þykjast vera einhverf?
Súr pilla
Ég er búin að vera að japla á súrri pillu í allt sumar sem ég verð einhvern veginn að fara að koma frá mér. Þannig er að ég las í vor umfjöllun um nýlegar rannsóknir, í Bandaríkjunum og Bretlandi meðal annars, um viðmótið sem mætir einhverfum einstaklingum í samfélaginu, sem og þau áhrif sem það … Halda áfram að lesa: Súr pilla
Grímuverðlaun einhverfunnar
Engir tveir eru eins, en þó mæta nánast allir einstaklingar á einhverfurófinu sterkum kröfum um að falla í fjöldann. Ekki vera öðruvísi, heldur vera meira eins og hinir. Gríman Með aukinni þekkingu á einhverfu kvenna og stúlkna, verður hugtakið "masking" - að setja upp grímu - sífellt þekktara. Enda erum við víst snillingar í þeirri … Halda áfram að lesa: Grímuverðlaun einhverfunnar