Ég er alltaf að læra. Ef ég skrifa einhvern tímann ævisögu þá verður þetta titillinn á henni. Ég. Er. Alltaf. Að. Læra. Jafnvel þegar ég vil ekki læra, þá læri ég. Hvernig væri annað hægt þegar augu og eyru taka endalaust eftir öllu sem fyrir þau ber? En ég læri líka af reynslunni. Ó hvað … Halda áfram að lesa: Miðaldra kona lærir mannleg samskipti
Konur á einhverfurófi
Hvers vegna segja frá?
Þetta er kannski undarleg spurning fyrir manneskju sem þolir ekki leyndarmál og kann ekki að ljúga. En ég ætla samt að reyna að svara henni eftir bestu getu. Hvers vegna þegja? Ég hef aldrei kunnað að ljúga, nokkuð sem greiningin hefur hjálpað mér að skilja. Ég gat til dæmis aldrei neitað því að ég væri … Halda áfram að lesa: Hvers vegna segja frá?
Að yfirfæra erfiða reynslu
Ég á börn á einhverfurófinu og hef lesið nánast allt sem hönd á festir um einhverfurófið, fylgst með umræðuhópum og þvælst um á YouTube í viðleitni minni til að vera góður bakhjarl og upplýst mamma. Skrýtna skrúfan Ég hef reyndar alltaf haft áhuga á - og samkennd með - fólki sem er á jaðri samfélagsins, … Halda áfram að lesa: Að yfirfæra erfiða reynslu
Einelti og ofbeldi, algeng reynsla stúlkna og kvenna á einhverfurófi
Stúlkur og konur á einhverfurófi deila mörgum sérkennum sem auðvelt er að bera kennsl á ef þekking er fyrir hendi. Eitt af því sem við deilum líka því miður allt of margar hver með annarri, eru áföll og erfið lífsreynsla í tengslum við mannleg samskipti. Konum á einhverfurófi gengur verr en öðrum að lesa í … Halda áfram að lesa: Einelti og ofbeldi, algeng reynsla stúlkna og kvenna á einhverfurófi
Ferðalangur á jörðinni
Á myndinni sést stúlka horfa gegnum myndavélarlinsu. Umhverfið er eyðilegt. Ef ekki væri þarna malarvegur, girðing og rafmagnsstaurar mætti halda að telpan væri ein í heiminum. Hefði jafnvel dottið af himnum ofan, ein með myndavél og sinn eigin skugga. Ferðalangur á jörðinni. Það glittir í heiðan himin milli ljósra og dökkra skýjabakka. Veðrið virðist kyrrt, … Halda áfram að lesa: Ferðalangur á jörðinni