Mannréttindabarátta af ýmsu tagi á í dag undir högg að sækja. Tíminn virðist vera að reyna að ganga aftur á bak. Bókstaflega í dag, 21. mars, er baráttudagur fólks með Downs heilkenni, sem eru svo óheppin að búa yfir fráviki sem er greinanlegt strax í móðurkviði og - ekki hvað síst á Íslandi - hefur … Halda áfram að lesa: Komið gott
Einhverfugreining fullorðinna
I made it through the wilderness
(Þessi pistill var upphaflega fluttur á Þjóðarspeglinum árið 2020 í málstofu um lífsgæði og þátttöku fatlaðra barna, sem "Innlegg frá einhverfri konu sem horfir til baka til unglingsáranna – horft til barnæsku og unglingsára og að verða fullorðin og allt sem því fylgir".) Komið sæl, takk fyrir að bjóða mér að tala hér í dag … Halda áfram að lesa: I made it through the wilderness
Gríman (masking)
(Þessi pistill var fyrst lesinn í hlaðvarpinu Ráfað um rófið) Engir tveir eru eins, en þó mæta nánast allir einstaklingar á einhverfurófinu sterkum kröfum um að falla í fjöldann. Ekki vera öðruvísi, heldur vera meira eins og hinir. Gríman Með aukinni þekkingu á einhverfu verður hugtakið „masking“ – að setja upp grímu – sífellt þekktara. … Halda áfram að lesa: Gríman (masking)
Einhverfar konur og ofbeldi
Ég hef alltaf hugsað í mynstrum. Þau sækja að mér úr öllum áttum, allt frá bílnúmerum yfir í strikin sem ég forðast að stíga á á gólfum eða stéttum. Það leynast mynstur í orðum og máli, taktur býr í öndun og hjartslætti og endurtekningar birtast í hegðun og framkomu. Enda þótt konur á einhverfurófinu séu … Halda áfram að lesa: Einhverfar konur og ofbeldi
Einhverfa og svefn – punktatenging
Eitt af því sem hinn einhverfi hugur gerir er að tengja saman punkta. Það geta verið raunverulegir punktar sem við sjáum með augunum og raða sér ósjálfrátt í mynstur (eins og að sjá andlit í gúrkusneiðum) en oft eru það annars konar molar sem safnast fyrir í huganum og taka smátt og smátt á sig … Halda áfram að lesa: Einhverfa og svefn – punktatenging
Einhverfar ástir
Eftirfarandi pistill var fluttur í þættinum Lestin á RÚV þann 25. janúar 2021. (Fyrsta og síðasta setning hans er örljóð frá mér til Benna) Til að geta fundið þig varð ég fyrst að finna mig Ef ég slæ inn leitarorðin „einhverfa“ og „ást“ (á ensku) sýnir google mér nokkur dæmi um algengar spurningar notenda sinna. … Halda áfram að lesa: Einhverfar ástir
Einhverfusamfélagið
Eftirfarandi pistill var fluttur í þættinum Lestin á RÚV, þann 11. janúar 2021. Ef einhver hefði sagt mér fyrir tuttugu árum síðan að til væri nokkuð sem héti einhverfusamfélag hefði ég haldið að viðkomandi væri að rugla. Það hlyti þá í mesta lagi að vera samansafn af fólki sem sæti sitt í hverju horni og … Halda áfram að lesa: Einhverfusamfélagið
Að greinast einhverf fullorðin – hvað svo?
Undanfarin ár hefur orðið mikil og góð vakning í greiningum einhverfra. Sumum þykir eflaust áhyggjuefni hvað margir greinast í dag á einhverfurófi, en við sem þekkjum til málsins af eigin raun erum þvert á móti mjög þakklát fyrir að sjóndeildarhringurinn skuli loks vera að víkka hvað okkur varðar. Það þýðir nefnilega að fleiri krakkar fá … Halda áfram að lesa: Að greinast einhverf fullorðin – hvað svo?
Hatar þú hljóð?
Sumt fólk hnerrar þegar það horfir upp í sólina, getur ekkert að því gert og heldur eflaust að það sama eigi við um alla aðra. Annað fólk getur hins vegar vel sleikt sólina án þess að hnerra og skilur ekkert í að neinum reynist það erfitt. Þessi hnerraviðbrögð heita photic sneeze reflex (líka þekkt sem Autosomal Compelling Helio-Ophthalmic … Halda áfram að lesa: Hatar þú hljóð?
Get ekki byrjað, get ekki hætt…
Uppáhalds hugtakið mitt þessa dagana er stýrifærni (e. executive functioning). Þetta litla orð umfaðmar nefnilega í einfaldleika sínum svo margbreytilegan veruleika og getur útskýrt svo ótalmargt í mannlegri tilveru. Í mjög stuttu máli fjallar stýrifærni um það að koma hugsun í verk og myndrænt má sjá hana fyrir sér eins og nokkurs konar tilbrigði við … Halda áfram að lesa: Get ekki byrjað, get ekki hætt…