Thinka

Lengi vel hélt ég að þynnka væri skrifað "thinka". Að það að vera að "drepast úr þynnku" þýddi að vera með rosalegan móral og geta ekki hætt að hugsa um eitthvað sem maður hefði gert af sér. Ekki svosem mjög fjarri lagi, þar sem þunna fólkið er oft líka með móral og finnst ekki alltaf … Halda áfram að lesa: Thinka

#ósýnilegar

Þann 2. apríl urðu straumhvörf í tilveru einhverfra kvenna á Íslandi, þegar heimildarmyndin "Að sjá hið ósýnilega" var frumsýnd. Myndin er 90 mínútna löng og segir frá lífi 17 ólíkra kvenna, frá okkar eigin sjónarhorni og með okkar eigin orðum. Það hefur verið töfrum líkast að fylgjast með og taka þátt í þessu einstaka verkefni … Halda áfram að lesa: #ósýnilegar

Af hverju ætti ég að þykjast vera einhverf?

Einn af rauðu þráðunum í reynslusögum kvenna á einhverfurófi, sem margar hverjar greinast á fullorðinsaldri, oft eftir langa og erfiða baráttu við að finna sér stað í tilverunni, er að þeim er ekki trúað, greiningin ekki tekin gild. Víða er líka erfitt að komast í greiningu og fordómar fagaðila sterkir, í takt við karllæga slagsíðu … Halda áfram að lesa: Af hverju ætti ég að þykjast vera einhverf?

Súr pilla

Ég er búin að vera að japla á súrri pillu í allt sumar sem ég verð einhvern veginn að fara að koma frá mér. Þannig er að ég las í vor umfjöllun um nýlegar rannsóknir, í Bandaríkjunum og Bretlandi meðal annars, um viðmótið sem mætir einhverfum einstaklingum í samfélaginu, sem og þau áhrif sem það … Halda áfram að lesa: Súr pilla

Tapað fundið – að greinast fullorðin á einhverfurófi

Undanfarna mánuði hef ég verið að melta tvær spurningar sem ég fékk í greiningarferlinu, þegar niðurstöður lágu fyrir. Sú fyrri var: Hverju finnst þér greiningin breyta? og sú síðari: Heldurðu að það hefði komið þér að gagni að greinast sem barn? Þó svo greiningin hafi verið staðfesting sem síst kom á óvart, fylgdu henni engu … Halda áfram að lesa: Tapað fundið – að greinast fullorðin á einhverfurófi

Einelti og ofbeldi, algeng reynsla stúlkna og kvenna á einhverfurófi

Stúlkur og konur á einhverfurófi deila mörgum sérkennum sem auðvelt er að bera kennsl á ef þekking er fyrir hendi. Eitt af því sem við deilum líka því miður allt of margar hver með annarri, eru áföll og erfið lífsreynsla í tengslum við mannleg samskipti. Konum á einhverfurófi gengur verr en öðrum að lesa í … Halda áfram að lesa: Einelti og ofbeldi, algeng reynsla stúlkna og kvenna á einhverfurófi