Eitt af því sem greinir á milli einhverfra og annarra er sérkennileg skynjun. Á það við um öll skynfærin - sjón, heyrn, lykt, bragð, snertingu, sársauka-, stöðu- og hreyfiskyn - og bara almennt allar þær aðferðir sem líkaminn notar til að túlka og vinna úr áreitum, hvort sem er utan eða innan eigin marka. Skynjun … Halda áfram að lesa: Skynvin eða -víti
Thinka
Lengi vel hélt ég að þynnka væri skrifað "thinka". Að það að vera að "drepast úr þynnku" þýddi að vera með rosalegan móral og geta ekki hætt að hugsa um eitthvað sem maður hefði gert af sér. Ekki svosem mjög fjarri lagi, þar sem þunna fólkið er oft líka með móral og finnst ekki alltaf … Halda áfram að lesa: Thinka
Sérþarfalistinn
,,Flest börnin sem koma núna eru af sérþarfalista og það er vegna þess að það er ekki hægt að fá önnur börn. Þetta eru ... börn sem þá er eitthvað að. Það er reynt að velja þau þannig að það sé eitthvað sem hægt er að laga eða hefur verið lagað," segir barnalæknir." Þessi ótrúlega … Halda áfram að lesa: Sérþarfalistinn
#ósýnilegar
Þann 2. apríl urðu straumhvörf í tilveru einhverfra kvenna á Íslandi, þegar heimildarmyndin "Að sjá hið ósýnilega" var frumsýnd. Myndin er 90 mínútna löng og segir frá lífi 17 ólíkra kvenna, frá okkar eigin sjónarhorni og með okkar eigin orðum. Það hefur verið töfrum líkast að fylgjast með og taka þátt í þessu einstaka verkefni … Halda áfram að lesa: #ósýnilegar
Augu
El ojo que ves no es ojo porque tú lo veas - es ojo porque te ve. (Antonio Machado) Augað sem þú sérð er ekki auga af því að þú sérð það - það er auga af því að það sér þig. Ég veit svosem ekki hvað ég hef horft mikið í augun á öðrum, … Halda áfram að lesa: Augu
Ómissandi rödd sem næstum var þögnuð
Frá því ég las það fyrst að Greta Thunberg, sænska skólastelpan sem fór í verkfall til að berjast fyrir loftslagsmálum og fer síðan sigurför um heiminn, væri á einhverfurófinu hlýnaði mér alltaf meira og meira í hjartanu við að hugsa til hennar. Það kom mér reyndar síður en svo á óvart að hún væri einhverf, … Halda áfram að lesa: Ómissandi rödd sem næstum var þögnuð
Af hverju ætti ég að þykjast vera einhverf?
Einn af rauðu þráðunum í reynslusögum kvenna á einhverfurófi, sem margar hverjar greinast á fullorðinsaldri, oft eftir langa og erfiða baráttu við að finna sér stað í tilverunni, er að þeim er ekki trúað, greiningin ekki tekin gild. Víða er líka erfitt að komast í greiningu og fordómar fagaðila sterkir, í takt við karllæga slagsíðu … Halda áfram að lesa: Af hverju ætti ég að þykjast vera einhverf?
Súr pilla
Ég er búin að vera að japla á súrri pillu í allt sumar sem ég verð einhvern veginn að fara að koma frá mér. Þannig er að ég las í vor umfjöllun um nýlegar rannsóknir, í Bandaríkjunum og Bretlandi meðal annars, um viðmótið sem mætir einhverfum einstaklingum í samfélaginu, sem og þau áhrif sem það … Halda áfram að lesa: Súr pilla
Grímuverðlaun einhverfunnar
Engir tveir eru eins, en þó mæta nánast allir einstaklingar á einhverfurófinu sterkum kröfum um að falla í fjöldann. Ekki vera öðruvísi, heldur vera meira eins og hinir. Gríman Með aukinni þekkingu á einhverfu kvenna og stúlkna, verður hugtakið "masking" - að setja upp grímu - sífellt þekktara. Enda erum við víst snillingar í þeirri … Halda áfram að lesa: Grímuverðlaun einhverfunnar
Miðaldra kona lærir mannleg samskipti
Ég er alltaf að læra. Ef ég skrifa einhvern tímann ævisögu þá verður þetta titillinn á henni. Ég. Er. Alltaf. Að. Læra. Jafnvel þegar ég vil ekki læra, þá læri ég. Hvernig væri annað hægt þegar augu og eyru taka endalaust eftir öllu sem fyrir þau ber? En ég læri líka af reynslunni. Ó hvað … Halda áfram að lesa: Miðaldra kona lærir mannleg samskipti