Staður fyrir rödd og reynslu einhverfra

Erindi þetta var flutt á ráðstefnu BUGL, "Ég má vera öðruvísi, margbreytileiki einhverfurófsins" þann 29. janúar 2021, fyrir hönd Einhverfusamtakanna. Einhverf móðir berst fyrir greiningu dóttur sinnar frá því hún er 12 til 15 ára. Framan af eru viðbrögðin frá kerfinu neikvæð, því dóttur hennar “gengur svo vel í skólanum”.Foreldrar einhverfs pilts funda reglulega með … Halda áfram að lesa: Staður fyrir rödd og reynslu einhverfra

Einhverfar ástir

Eftirfarandi pistill var fluttur í þættinum Lestin á RÚV þann 25. janúar 2021. (Fyrsta og síðasta setning hans er örljóð frá mér til Benna) Til að geta fundið þig varð ég fyrst að finna mig Ef ég slæ inn leitarorðin „einhverfa“ og „ást“ (á ensku) sýnir google mér nokkur dæmi um algengar spurningar notenda sinna. … Halda áfram að lesa: Einhverfar ástir

Að greinast einhverf fullorðin – hvað svo?

Undanfarin ár hefur orðið mikil og góð vakning í greiningum einhverfra. Sumum þykir eflaust áhyggjuefni hvað margir greinast í dag á einhverfurófi, en við sem þekkjum til málsins af eigin raun erum þvert á móti mjög þakklát fyrir að sjóndeildarhringurinn skuli loks vera að víkka hvað okkur varðar. Það þýðir nefnilega að fleiri krakkar fá … Halda áfram að lesa: Að greinast einhverf fullorðin – hvað svo?

Hatar þú hljóð?

Sumt fólk hnerrar þegar það horfir upp í sólina, getur ekkert að því gert og heldur eflaust að það sama eigi við um alla aðra. Annað fólk getur hins vegar vel sleikt sólina án þess að hnerra og skilur ekkert í að neinum reynist það erfitt. Þessi hnerraviðbrögð heita photic sneeze reflex (líka þekkt sem Autosomal Compelling Helio-Ophthalmic … Halda áfram að lesa: Hatar þú hljóð?

Er einhverf stelpa í bekknum hjá þér?

Ég hugsa að flestir kennarar myndu svara þessari spurningu neitandi, samkvæmt sinni bestu vitund. Ég er hins vegar sannfærð um að langflestir kennarar ættu á einhverjum tíma að geta svarað henni játandi. Staðan er bara sú að einhverfar stúlkur eru alltof oft ósýnilegar, en eru í raun mun fleiri en okkur hefur nokkurn tímann grunað. … Halda áfram að lesa: Er einhverf stelpa í bekknum hjá þér?

Get ekki byrjað, get ekki hætt…

Uppáhalds hugtakið mitt þessa dagana er stýrifærni (e. executive functioning). Þetta litla orð umfaðmar nefnilega í einfaldleika sínum svo margbreytilegan veruleika og getur útskýrt svo ótalmargt í mannlegri tilveru. Í mjög stuttu máli fjallar stýrifærni um það að koma hugsun í verk og myndrænt má sjá hana fyrir sér eins og nokkurs konar tilbrigði við … Halda áfram að lesa: Get ekki byrjað, get ekki hætt…

Einhverfa á tímum Covid-19

Undanfarnar vikur hef ég aðeins verið að grínast með það að heimurinn sé að verða dálítið einhverfur. Fólk forðast margmenni, er ekkert að snerta hvert annað að óþörfu, fundir breytast í tölvusamskipti og íþróttakappleikjum er frestað. Eins hef ég alveg orðið vör við að það sem ég kalla daglegt líf, kalla aðrir sóttkví. Alvarlega hliðin … Halda áfram að lesa: Einhverfa á tímum Covid-19