Undanfarna mánuði hef ég verið að melta tvær spurningar sem ég fékk í greiningarferlinu, þegar niðurstöður lágu fyrir. Sú fyrri var: Hverju finnst þér greiningin breyta? og sú síðari: Heldurðu að það hefði komið þér að gagni að greinast sem barn? Þó svo greiningin hafi verið staðfesting sem síst kom á óvart, fylgdu henni engu … Halda áfram að lesa: Tapað fundið – að greinast fullorðin á einhverfurófi
Asperger
Að yfirfæra erfiða reynslu
Ég á börn á einhverfurófinu og hef lesið nánast allt sem hönd á festir um einhverfurófið, fylgst með umræðuhópum og þvælst um á YouTube í viðleitni minni til að vera góður bakhjarl og upplýst mamma. Skrýtna skrúfan Ég hef reyndar alltaf haft áhuga á - og samkennd með - fólki sem er á jaðri samfélagsins, … Halda áfram að lesa: Að yfirfæra erfiða reynslu
Ég er Beta
Hvaða sögupersóna úr bókum Astridar Lindgren ert þú? Af og til rekst ég á netpróf sem segja til um hvort við erum Lína, Ronja, Emil eða aðrir snillingar úr sögum Astridar Lindgren, en það vantar alltaf mína manneskju í þessi próf. Það vantar hana Betu, litlu systur Madditar. Beta er hrein og bein, hvatvís, huguð … Halda áfram að lesa: Ég er Beta
Einelti og ofbeldi, algeng reynsla stúlkna og kvenna á einhverfurófi
Stúlkur og konur á einhverfurófi deila mörgum sérkennum sem auðvelt er að bera kennsl á ef þekking er fyrir hendi. Eitt af því sem við deilum líka því miður allt of margar hver með annarri, eru áföll og erfið lífsreynsla í tengslum við mannleg samskipti. Konum á einhverfurófi gengur verr en öðrum að lesa í … Halda áfram að lesa: Einelti og ofbeldi, algeng reynsla stúlkna og kvenna á einhverfurófi
Kryptónít
Öllum ofurkröftum fylgir veikleiki. Stundum er sjálfur styrkleikinn veikleiki og stundum fylgir einhvers konar Akkilesarhæll eða mistilteinn. Takið eftir, takið eftir, takið eftir... Skörp athyglisgáfa er vissulega ofurkraftur sem þó nýtist misvel eftir aðstæðum. Ég var til dæmis að reyna að leggja mig áðan inni í sjónvarpsherbergi hjá mömmu og pabba. Þægilegur sófi, hlýtt og … Halda áfram að lesa: Kryptónít
Einhverfu-playlistinn
Þegar erfitt er að koma tilfinningum í orð er tónlist - með eða án texta - tilvalið tjáningarform. Fyrir mig eru söngtextar og ljóð mikilvægur og ómissandi hluti tilverunnar. Tónlist jarðtengir um leið og hún ljær huganum vængi til að svífa um alheiminn. Escapes through the rhythm of words Þannig hljómar ein af lýsingunum sem … Halda áfram að lesa: Einhverfu-playlistinn
Ferðalangur á jörðinni
Á myndinni sést stúlka horfa gegnum myndavélarlinsu. Umhverfið er eyðilegt. Ef ekki væri þarna malarvegur, girðing og rafmagnsstaurar mætti halda að telpan væri ein í heiminum. Hefði jafnvel dottið af himnum ofan, ein með myndavél og sinn eigin skugga. Ferðalangur á jörðinni. Það glittir í heiðan himin milli ljósra og dökkra skýjabakka. Veðrið virðist kyrrt, … Halda áfram að lesa: Ferðalangur á jörðinni